Við byggjum, breytum og sinnum viðhaldi.
Smíðavit er alhliða byggingaverktaki. Við tökum að okkur byggingastjórn nýbygginga og breytinga, nýsmíði að innan og utan auk viðhalds og breytinga — og gerum tilboð eða vinnum í tímavinnu, eins og þér hentar.
Hvað getum við gert fyrir þig?
Frá teikningu og byggingastjórn að síðustu fjöl á sólpallinum.

Byggingastjórnun
Við veitum þjónustu í byggingastjórnun við nýbyggingar og endurinnréttingu húsnæðis, s.s. að hafa umsjón með teikningum, teikningalestur og samræmingu teikninga, áfangaúttektir, skráningu teikninga, að votta efniskaup, skrá framvindu verks, gera handbók hússins og alla aðra almenna byggingastjórnun.
Fyrir hverja vinnum við?
Í hópi viðskiptavina Smíðavits má finna jafnt húsfélög, verktaka og einkaaðila.
- Einstaklingar
- Sem vilja gera heimilið enn glæsilegra, hvort sem það er nýsmíði, viðhald eða breytingar.
- Húsfélög
- Viðhald og breytingar á fasteignum, sem eykur og viðheldur verðmæti þeirra.
- Fyrirtæki
- Breytingar og viðhald fasteigna fyrirtækja.
- Verktakar
- Stærri verktakar sem vilja fá fagmenn í verkið.
Tilboð eða tímavinna — eins og þér hentar
Þú lýsir verkinu og við gerum tilboð í það.
- Sendu verkbeiðni með lýsingu og myndum eða teikningum
- Hafðu samband og við gerum tilboð
Úr verkunum
Fleiri myndir
Löggiltir húsasmíðameistarar
Smíðavit er löggildur húsasmíðameistari og byggingastjóri. Fyrirtækið hefur skapað sér nafn við góðan orðstír meðal viðskiptavina sinna, og við höfum mikla reynslu af stórum og smáum verkum.
- Birkir Örn ArnarsonHúsasmíðameistari · stofnandi
- Hörður Óli NíelssonHúsasmíðameistari · stofnandi
Segðu okkur frá verkinu
Fylltu út verkbeiðni og við gerum tilboð eða vinnum í tímavinnu, eins og þér hentar.
